Stoðþjónusta

Teiknuð mynd af barni, kennara og foreldri sem sitja saman við borð.

Stefna Reykjavíkurborgar um sérkennslu og stuðning hefur skóla án aðgreiningar að megin leiðarljósi. Í því felst að skólinn veiti öllum nemendum sínum þjónustu fötluðum jafnt sem ófötluðum. Kennaranum er ætlað að aðlaga kennslu sína að nemendahópnum og þarf því að beita mismunandi kennsluaðferðum og vera með mismunandi viðfangsefni fyrir nemendur sína. 

""

Menntun fyrir alla

Í grunnskólum Reykjavíkur er sérhverju barni mætt í námi óháð atgervi þess og stöðu.

""

Námsráðgjöf

Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um um velferð nemenda. Upplýsingar um námsráðgjöf er að finna í starfsáætlun skólans. 

""

Heilsugæsla

Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta.

Stuðningsþjónusta í Álftamýrarskóla

Stoðþjónustan byggir á þverfaglegu samstarfi í fagteymum skólans.  Í fagteymum eru auk umsjónarkennarar sérkennarar, stuðningsfulltrúar og aðrir sérfræðingar eftir þörfum.  Fagteymin kortleggja, skipuleggja og framkvæma nám og kennslu fyrir allan nemendahópinn og koma til móts við stuðningsþarfir hvers og eins nemanda. Frekari upplýsingar um stoðþjónustu má finna í starfsáætlun skólans.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. 

Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. 

Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliðir Álftamýrarskóla eru: Hildur Ýr Gísladóttir og Svanhildur Einarsdóttir