Heilsugæsla í Álftamýrarskóla
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.
Heilsuvernd skólabarna í Álftamýrarskóla er á vegum Heilsugæslunnar Kirkjusandi.
Skólahjúkrunarfræðingar eru Jóna Rán Sigurjónsdóttir og Jórmundur Kristinsson. Viðverutími er mánudaga til fimmtudaga kl. 8:30 – 13:30.
Fræðsla og forvarnir
Skólaheilsugæslan sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Byggt er á hugmyndafræði um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Hjúkrunarfræðingar sjá um tannfræðslu í 1., 4. og 7. bekk.
Þeir hafa einnig yfirumsjón með lyfjagjöfum skólabarna í samráði við foreldra. Auk þess sinna þeir reglubundnum skoðunum og bólusetningum. Nánari upplýsingar um verkefni skólaheilsugæslunnar má finna í starfsáætlun skólans.
